Á morgun fimmtudaginn 9. júní fer fram fyrsti bæjarstjórnarfundur nýrrar bæjarstjórnar
Fundurinn verður haldinn í Einarsstofu, Safnahúsi, og hefst hann kl. 12:00.
Dagskrá fundarins:
- Kosning forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara.
- Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
- Þóknun til fulltrúa í nefndum og ráðum á vegum Vestmannaeyjabæjar.
- Ráðning bæjarstjóra.
- Dagskrá bæjarstjórnarfunda.
- Strandvegur 104. Umsókn um stækkun lóðar og byggingarreits.
- Umræða um samgöngumál.
Fundargerðir til staðfestingar
- Fræðsluráð.
- Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja.
- Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja.
- Fjölskyldu- og tómstundaráð.

