25.10.2020
Forsætisráðuneytið undirritaði í gær 24.október samning við Hagstofu Íslands um að gera rannsókn á launamun karla og kvenna.
45 ár liðin frá því að íslenskar konur lögðu niður vinnu
Um er að ræða fyrstu rannsókn á launamun karla og kvenna sem ráðist er í frá því að lög um jafnlaunavottun tóku gildi árið 2018. Dagsetning undirritunar er táknræn því í dag eru 45 ár liðin frá því að íslenskar konur lögðu niður vinnu, á kvennafrídaginn á kvennaári Sameinuðu þjóðanna árið 1975, til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna og krefjast jafnréttis i launum.
Dagurinn er jafnframt dagur Sameinuðu þjóðanna en þennan dag var stofnsáttmáli samtakanna staðfestur
Þess er vænst að rannsóknin gefi vísbendingar um hvaða árangri jafnlaunavottun hefur skilað til að uppræta kynbundinn launamun. Niðurstöður rannsóknarinnar eiga að liggja fyrir á vormánuðum 2021. Síðasta rannsókn um launamun karla og kvenna náði til ársins 2016 og mikilvægt þykir að þróa áfram aðferðir til að reikna út á enn nákvæmari hátt óútskýrðan launamun kynjanna og mun ný rannsókn Hagstofunnar taka mið af því.
Lögfesting jafnlaunavottunar á Íslandi vakti heimsathygli og hefur orðið mörgum fyrirtækjum og stofnunum hvatning til góðra verka
Þó að innleiðingu jafnlaunastaðalsins sé ekki lokið á öllum vinnumarkaðnum er gagnlegt að taka stöðuna nú þegar stærstur hluti opinberra aðila og stærstu fyrirtækin á almenna markaðnum hafa lokið innleiðingu og fengið jafnlaunavottun.
Greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins Íslands.