Miðvikudagur 7. júní 2023

Fyrsta loðna vertíðarinnar er komin til Eyja

Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar má lesa um að Huginn hafi lagt af stað af miðunum fyrir norðan land með fyrstu loðnuna til Vestmannaeyja. Skipið kom til hafnar í gærkvöldi með um 1.800 tonn til bræðslu.

Ísleifur er áfram að veiðum norður af Langanesi, kominn með um 1.300 tonn og lagði að stað heim á leið í gær kvöldi.

Þá Kap er komin í höfn hér í Vestmannaeyjum eftir að hafa lagt úr höfn á Akureyri um kvöldmatarleytið á miðvikudaginn úr viðgerðarstoppi í um sólarhring. Skipið var dregið til hafnar nyrðra fyrr í vikunni þegar aðalvél þess bilaði. Vinnslustöðin bjó svo vel að eiga viðeigandi varahluti og því tók tiltölulega skamman tíma að gera við.

Svo kom því miður í ljós að bilunarsögunni var þar með ekki lokið til fulls því Kap hafði ekki siglt lengi frá Akureyri þegar kom á daginn að eitthvað var enn athugavert við aðalvélina. Ákveðið var þá að sigla skipinu beint til Vestmannaeyja og kanna málið betur hér. Við komuna verður landað 800 tonnum af loðnu sem í Kap eru, aðalvélin yfirfarin á ný og siglt á miðin aftur að viðgerð lokinni – þegar líka yfirvofandi brælu linnir.

Helstu tíðindi morgunsins eru engu að síður þau að fyrsta loðna vertíðarinnar er á leið til Eyja. Næstu sólarhringa verður því mikið um að vera í Fiskimjölsverksmiðju VSV!  

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is