Laugardagur 17. október 2026

Fyrsta flutningi milli seiðastöðvarinnar og áframeldis lokið.

Síðastliðinn föstudag fóru fyrstu flutningarnir frá seiðastöðinni yfir í áframeldið fram og heppnuðust afar vel. Fyrir einu ári síðan fékk Laxey sinn fyrsta skammt af hrognum, sem síðan hafa vaxið í gegnum ferlið á seiðastöðinni okkar. Nú eru þau tilbúin að halda áfram vexti sínum í áframeldinu í Viðlagafjöru. Fyrst um sinn verða þau í stórseiðahúsinu, en að lokum verða þau flutt í áframeldiskerin þegar rétti tíminn er kominn.
Til að tryggja farsælan flutning þurfti allt að ganga upp – framkvæmdir þurftu að vera á áætlun, allur tæknibúnaður uppsettur, gangsettur og prófaður. Mikið hrós og tækni- og framkvæmdarteymi félagsins til að tryggja að stórseiðahúsið sé klárt á tíma. Mikil vinna hefur því farið fram undanfarnar vikur til að undirbúa þetta skref. Stemningin hefur verið frábær, og allir einbeittir og staðráðnir í að láta flutninginn ganga upp.
Flutningurinn gekk hnökralaust fyrir sig og lífmassinn er að aðlagast vel nýju umhverfi sínu.
Þessi árangur er stórt skref fram á við og ber vitni um mikla vinnu og elju starfsmanna félagsins.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search