Þann 10. ágúst kl. 15:28 fæddist fyrsta barnið í Vestmannaeyjum á þessu ári en foreldrarnir eru Drífa Þorvaldsdóttir og Friðrik Már Sigurðsson.
„Fæðingin gekk eins og í sögu og hann fæddist 3645 gr eða 14,5 merkur og 50 cm. Settur dagur var ekki fyrr en 21. ágúst svo að hann kom eftir 38+3 daga meðgöngu. Það heilsast öllum mjög vel. Það má segja að planið hafi verið að eiga í eyjum. Ég hafði það á tilfinningunni að ég gengi ekki alla leið með hann og við vorum ekkert á leiðinni uppá land á næstunni. Ég átti eldri strákinn hér 2014 og fannst það dásamlegt, langaði rosalega að eiga heima aftur og var svo heppin að það gekk upp. Björg ljósmóðir tók á móti, hún var alveg frábær og sá til þess að fæðingin var einstaklega afslöppuð og góð“ segir Drífa í samtali við Tígul.
Systkinin heita Óliver og Mónika Hrund og eru 6 og 2 ára.