Föstudagur 13. nóvember 2026

Fyrsta árið liðið hjá nýjum rekstraraðilum Hallarinnar

Vilja sinna þessu svo sómi sé af

Fyrir ári síðan stofnuðu tveir félagar fyrirtækið Kátt í Höllinni ehf. og voru með stóra drauma um Höllina í Vestmannaeyjum.

„Það er eiginlega magnað að hugsa til þess að ár sé síðan við tókum við, því tíminn hefur ætt áfram,“ segir Daníel Geir Moritz, annar eiganda Kátt í Höllinni ehf. Daníel Geir hefur rekið Höllina með félaga sínum, Svani Gunnsteinssyni, og er óhætt að segja að fyrsti veturinn hafi verið óhefðbundinn vegna heimsfaraldurs. „Það var að einhverju leyti bilun að fara út í þetta á þeim tímapunkti sem við hófumst handa en þrátt fyrir ákveðin vonbrigði út af covid gekk þetta ljómandi vel. Við fengum til okkar viðburði sem höfðu frestast og vóg það upp á móti að einhverju leyti. Tilhugsunin að setja saman dagskrá fyrir haustið núna án þess að vera að velta þessu fyrir sér er svakalega góð og hefur líka verið gaman að finna þann stuðning sem Eyjamenn hafa sýnt okkur í þessu verkefni. Við erum auðvitað ekkert án fólksins hérna.“

Fjölmargir viðburðir hafa verið á þessu fyrsta rekstrarári nýrra rekstraraðila og segir Daníel Geir þá hafa gengið vel. „Við dembdum okkur beint í djúpu laugina og var fyrsti viðburðurinn í okkar umsjá

árshátíð Vinnslustöðvarinnar. Hún gekk mjög vel og færði okkur byr í seglin. Síðan fylgdu góðir viðburðir eins og jólahlaðborðin, uppistand með Ara Eldjárn, árshátíð Vestmannaeyjabæjar og afmæli Ísfélagsins, svo dæmi séu tekin. Eitt af markmiðum okkar var að ná upp forsölustemningu í Vestmannaeyjum og verður hún alltaf á Tix á viðburðum sem við höldum. Það sannaði sitt þegar Bjartmar mætti um Goslokahelgina og voru þá haldnir fjölmennustu tónleikar í Höllinni í manna minnum. Það var virkilega

skemmtilegt, enda kallinn magnaður og stemninginn hjá Eyjamönnum eins og hún gerist hvað best.“

Veturinn er framundan og leikur marga forvitni á að vita hvað verði í Höllinni. „Við erum að reyna að

höfða til sem flestra og fyrir mér er ákveðin ábyrgð í rekstri á svona húsi. Mér finnst skipta miklu máli að listamenn úr Eyjum sem vilja koma fram í Höllinni fái brautargengi og að þeir taki þátt á tónleikum og árshátíðum. Við leggjum mikið upp úr því og sem dæmi er hljómsveitin Brimnes með haustball á laugardaginn. Framundan er svo singa along með Guðrúnu Árnýju, uppistand með Þórhalli Þórhallssyni, geggjuð jólahlaðborð þar sem Stefán Hilmarsson verður sérstakur gestur og svo mun Ari snúa aftur í

nóvember. Framundan er líka Lundaball sem ekki var unnt að halda í fyrra og er mikil tilhlökkun fyrir því hjá okkur,“ segir Daníel Geir.

Það er þekkt að oft eru Íslendingar á síðustu stundu með skipulag og að kaupa sér miða en Hallarmenn

sjá ákveðna breytingu í farvatninu í þeim efnum. „Það er gott að einhverju leyti að mæta lífinu þannig að hlutir reddist en stundum reddast þeir bara ekki. Það upplifðu einhverjir sem komust ekki á Bjartmarstónleikana, enda varð uppselt talsvert áður en þeir voru haldnir. Við erum strax búnir að fá fyrirspurnir um brúðkaup næsta sumar, enda hvergi betra að halda góða veislu en hjá okkur.“

En er eitthvað að lokum sem þið viljið koma á framfæri? 

„Já, kannski tvennt. Takk fyrir þann hlýhug sem þið hafið sýnt okkur og endilega verið dugleg að mæta. Við tökum öllum ábendingum um viðburði vel og viljum sinna þessu svo sómi sé af. Svo má líka koma því á framfæri að það er engin veisla að þrífa konfettí en Svanur getur sagt ykkur betur frá því,“ sagði Daníel Geir kíminn að lokum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search