Þriðjudagur 10. nóvember 2026
Landeyjar - Álfnes

Fyrirséð röskun á siglingum Herjólfs III

Á vef vegagerðarinnar var sagt frá því að Álfsnesið hafi bilað í gær, þurfti að skipta um spil.

Álfsnes er nú komið á ný til dýpkunar í Landeyjahöfn eftir að bilun kom upp.

Hætt var við að setja gamla Herjólf í áætlun í dag eins og til stóð, og sagði í tilkynningu síðdegis í gær frá Herjólfi ohf. að skiptunum seinki um a.m.k sólarhring.

Hér er öll frétt vegagerðarinnar frá því í gærkvöldi:

Skipta þarf um spil í Álfsnesi

Stefnt er að því að hefja dýpkun á ný í Landeyjahöfn í kvöld eftir að bilun kom upp í lyftubúnaði dýpkunarskipsins Álfsness. Búast má við einhverri röskun á siglingum gamla Herjólfs næstu daga og líklegt er að ferjan muni sigla eftir sjávarföllum. Viðgerðir standa nú yfir á Álfsnesi en bilunin kom upp í því í gærkvöldi. Vonast er til að skipið verði komið í lag seinnipartinn í dag.

Við dýpkunina í Landeyjahöfn í gærkvöldi bilaði spilið í Álfsnesi, sem sér um að lyfta dælurörinu. Skipinu var siglt til Vestmannaeyja í viðgerð en þar kom í ljós að það þyrfti meiri viðgerð heldur en vonir stóðu til. Því var ákveðið að sigla til Þorlákshafnar og reyna að ná skipinu í lag eins hratt og hægt er.

Bilunin kemur fram á óheppilegum tíma því dýpi í Landeyjahöfn er ekki nægjanlegt eins og staðan er núna fyrir Herjólf III, en gott fyrir Herjólf IV.  Ljóst er að nýja dýpkunarskipið, Álfnes, stendur undir væntingum og er töluvert afkastameira heldur en eldri dýpkunarskip sem Björgun efh. hefur notað við dýpkun í Landeyjahöfn.

Herjólfur IV er í slipp

Gamli Herjólfur, Herjólfur III, leysir Herjólf IV af í siglingum milli lands og Eyja meðan nýja ferjan er í slipp í Hafnarfirði og verður þar næstu 3 vikurnar. Undanfarna viku hefur verið unnið að dýpkun Landeyjahafnar í þeim tilgangi að höfnin geti nýst eldra skipinu, en skipið þarf töluvert meira dýpi en nýi Herjólfur og því þarf að dýpka vel niður fyrir umhverfisdýpi umhverfis höfnina.

Miðað við ölduspá ætti að vera hægt að dýpka höfnina áfram á morgun, föstudag og fram á laugardagskvöld. Ef allt gengur að óskum ætti þá að vera komið gott dýpi í höfninni fyrir Herjólf III.

Mynd: Heimir Hoffritz

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search