Í dag fimmtudag 21. október klukkan 17:00, verður erindi fyrir foreldra og forráðamenn allra barna í GRV um gróskuhugarfar.
Ársæll Már Árnason prófessor við Háskóla Íslands mun sjá um fyrirlesturinn og fræða foreldra um hugtakið gróskuhugarfar.
Fjallað verðu um hvernig slíkt hugarfar eykur líkurnar á þrautseigju og vilja til að takast á við áskoranir og stór verkefni, og að leggja á sig vinnu við að æfa upp getu sem áður var ekki til staðar.
Fyrirlesturinn er í samvinnu við þróunarverkefni skólans Kveikjum neistann þar sem hugtakið gróskuhugarfar skipar stóran sess.
Erindið í dag er ætlað foreldrum barna í 2. – 10. bekk.
Ekki láta þetta framhjá ykkur fara.
Fundurinn verður í sal Barnaskólans klukkan 17:00.