Þann 1. maí nk. verða tekin varfærin skref til afléttingar sóttvarnaraðgerða á landamærum sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
Frá og með 1. maí verður byggt á reglulega uppfærðu áhættumati Sóttvarnarstofnunar Evrópu og ríki flokkuð í græn, appelsínugul, rauð og grá eftir stöðu faraldursins.
Í ljósi landfræðilegrar sérstöðu Íslands og annarra sóttvarnasjónarmiða verður harðari sóttvarnaraðgerðum hins vegar beitt fyrir hvern áhættuflokk en þeim sem lögð eru til í tilmælum Evrópusambandsins, að minnsta kosti fyrst um sinn. Farþegar frá hættuminni löndum verða undanþegnir sóttkví og síðari skimun geti þeir framvísað vottorði um neikvæða niðurstöðu PCR-prófs innan tiltekins tíma.
Komufarþegar sem geta framvísað gildu vottorði sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin verða áfram undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum og það sama mun gilda um komufarþega sem geta framvísað gildu bólusetningarvottorði.

Við skilgreiningu í áhættuflokka verður notast við sömu viðmið og lagt er til í samræmdum tilmælum Evrópusambandsins:
14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa
Hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda tekinna sýna undanfarna viku
Sýnatökuhlutfall, þ.e. fjölda sýna sem tekin eru á hverja 100.000 íbúa undanfarna viku
Viðmið litakóðunarkerfisins eru þannig:
Grænn litur þýðir að nýgengi smita er undir 25 (m.v. 100.000 íbúa) og hlutfall jákvæðra sýna er undir 4%
Appelsínugulur litur þýðir að nýgengi er undir 50 en hlutfall jákvæðra sýna er 4% eða meira eða nýgengi er 25-250 og hlutfall jákvæðra sýna er undir 4%
Rauður litur á við í öðrum tilvikum
Grár litur þýðir að ekki liggja nægilegar upplýsingar fyrir eða tekin eru færri sýni en 300 á hverja 100.000 íbúa á viku
Þær sóttvarnareglur sem gilda munu fyrir ólíka áhættuflokka eru eftirfarandi:
Með því að greina svo snemma frá fyrirkomulagi sóttvarnaráðstafana á landamærum sem stefnt er að í vor er framkvæmdar- og söluaðilum gert kleift að undirbúa breytingar vel. Áhættumat litakóðunarkerfis tekur mið af óvissu um þróun faraldurs og gerir meiri fyrirsjáanleika mögulegan.
Við undirbúning ákvörðunar um fyrirkomulag á landamærum var horft til vinnu efnahagshóps fjármála- og efnahagsráðherra, vottorðahóps heilbrigðisráðuneytis, tölfræðiteymis Háskóla Íslands um áhrif sóttvarna á landamærum, samræmdra tilmæla ESB um ferðalög, leiðbeininga sem Sóttvarnastofnun Evrópu gaf út samhliða ferðatilmælum ESB, upplýsinga um bóluefni og bólusetningar frá heilbrigðisráðuneytinu og þeirrar reynslu og tölfræðilegu innsýnar sem skimanir á íslenskum landamærum hafa veitt síðustu mánuði.
Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðs Íslands.

