Rafmagn til Vestmannaeyja, forgangsorka, varaafl og rafmagnsþörf
Íris Róbertsdóttir Bæjarstjóri, gerði grein fyrir stöðu viðræðna og vinnu um rafmagnsþörf í Vestmannaeyjum á bæjarráðsfundi nú í dag.
Til stendur að funda með Landsvirkjun um stöðuna á næstunni
Jafnframt stendur til að eiga fund með orkumálaráðherra um stöðuna og mál er varða stjórnvöld um raforku og afhendaringaröryggi hennar. Auk þess á Vestmannaeyjabær í viðræðum við Landsnet um stöðu rafmagnsmála í Vestmannaeyjum. Þá hefur verið að störfum sérstakur starfshópur um varaafl í Vestmannaeyjum, sem skipaður er fulltrúum hagsmunaaðila um uppbyggingu varaafls í Eyjum.
Bæjarráð þakkaði Íris fyrir upplýsingarnar.

