Það var þétt setið í Eldheimum í gær þar sem Magnús R. Einarsson fór fyrir fríðum hópi tónlistarfólks. Tónleikarnir voru byggðir upp á lögum frá Suður-Evrópu sem hlotið hafa íslenska texta og sagði Magnús skemmtilega frá hverju lagi og hvernig yrkisefnið er oft víðsfjarri á milli tungumálanna. Til dæmis ítalskt barnalag um blóm og endur sem hafa ofnæmi fyrir pólitík og varð síðar að miklum pólitískum ádeilusöng, á íslensku fjallar það hins vegar um Bjössa á mjólkurbílnum og aksturslag hans og sjarma.
Ásamt Magnúsi voru í hljómsveitinni Kristinn Jónsson, Hannes Friðbjarnarson og Guðný Charlotta Harðardóttir. Söngvarar kvöldsins voru Þórarinn Ólason, Guðrún Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Helgadóttir, Silja Elsabet Brynjarsdóttir og Eggert Jóhannsson. Myndir frá tónleikunum má sjá hér að neðan.
Í kvöld heldur tónlistarveislan svo áfram með 70 ára afmælistónleikum Bjartmars Guðlaugssonar í Höllinni kl. 20.00, en uppselt er á þá. Klukkan 22.00 opnar svo Prófasturðinn þar sem fram fara Sveittustu tónleikar sem haldnir hafa verið í Vestmannaeyjum síðan alltaf. Þar koma fram Foreign Monkeys, Molda og Sveitta nostalgíu bandið. Galdrakarlinn hitar upp mannskapinn frá kl. 22.00.















