Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á barnalögum sem kveða á um skipta búsetu barna
Með samþykkt frumvarpsins er lögfest ákvæði um heimild foreldra sem ekki búa saman en fara sameiginlega með forsjá barns til að semja um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Lögin bera með sér að forsenda þess að foreldrar semji um sameiginlega forsjá verði sú að foreldrar geti unnið saman á fullnægjandi hátt og haft samráð um málefni barns.
Þá er í lögunum að finna það nýmæli að barn geti haft frumkvæði að því að sýslumaður boði foreldra til samtals til að ræða fyrirkomulag forsjár, lögheimilis, búsetu og umgengni. Að auki eru í lögunum ákvæði um framfærslu og meðlag með áherslu á aukið samningsfrelsi foreldra.
Nánar má fræðast um feril frumvarpsins og nefndarálit á vef Alþingis.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra greinir einnig frá þessu á facebooksíðu sinni fyrr í dag, en hún hefur barist fyrir þessu.
Loksins! Nú hefur frumvarpið um skipta búsetu barna verið samþykkt
Foreldrar sem kjósa að ala upp börn sín í góðri sátt á tveimur heimilum þurfa að búa við sambærileg skilyrði af hálfu hins opinbera en ekki sé ýtt undir ágreining með ójafnri stöðu heimilanna.
Skipt búseta stuðlar að jafnari stöðu foreldra og gerir ráð fyrir að foreldrar geti unnið saman í öllum málum er varða barnið sé það barni fyrir bestu.


