Þriðjudagur 5. desember 2023

Frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta

Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um ávana- og fíkniefni sem fjallar um afglæðavæðingu neysluskammta.

Frumvarpið byggist á hugmyndafræði skaðaminnkunar með áherslu á að draga úr neikvæðum afleiðingum vímuefnanotkunar, hvort heldur hjá notandanum, fjölskyldum hlutaðeigandi, nærsamfélagi notandans og samfélagsins í heild. Umsagnarfrestur er til og með 1. mars 2021.

Efni frumvarpsins er í samræmi við stefnu stjórnvalda um að meðhöndla skuli vanda vímuefnanotenda í heilbrigðiskerfinu fremur en dómskerfinu. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að snúa þurfi af braut harðra refsinga fyrir neyslu fíkniefna og leggja fremur áherslu á forvarnir og lýðheilsu.

Helstu breytingar

Þær meginbreytingar sem lagðar eru til á gildandi lögum um ávana- og fíkniefni, fela í sér að kaup og varsla á takmörkuðu magni ávana- og fíkniefna til eigin nota, svokallaðra neysluskammta, verði heimiluð og ekki refsiverð. Gert er ráð fyrir að ráðherra kveði á um það í reglugerð hvernig skilgreina beri neysluskammt í samráði við lögregluna og notendur. Enn fremur er lagt til að ekki skuli gera upptæk ávana- og fíkniefni sem eru í vörslu einstaklinga sem eru 18 ára og eldri ef magnið er innan skilgreindra marka um neysluskammt.

„Við erum að feta okkur inn á nýjar brautir í þessum málum með áherslu á hugmyndafræði skaðaminnkunar. Þegar hefur verið stigið mikilvægt skref í þessa átt þar sem nú er heimilt samkvæmt lögum að stofna og reka svokölluð neyslurými, líkt og nánar er kveðið á um í reglugerð sem ég staðfesti fyrir skömmu“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is