Fimmtudagur 21. september 2023

Frístund opnar í Hamarsskóla þriðjudaginn 11. ágúst

05.08.2020

Frístund er starfrækt eftir hádegi alla virka skóla daga frá 12:30-16:30 fyrir börn í 1-4 bekk. Jafnframt verður boðið upp á heilsdagsvistun á starfsdögum og í vetrarfríi frá 07:45 – 16:30.

Dagana 11.-24. ágúst verður heilsdagsvistun á frístund. Þann 11-14 ágúst verður aðeins opið fyrir börn sem eru að fara í fyrsta bekk. 17.-24. ágúst verður opið fyrir öll börn í 1-4.bekk sem eiga gilda umsókn. Umsóknarblað fyrir vistun þessa daga verður send út á foreldra sem eiga barn skráð á frístund í byrjun ágúst.

Megin markmið frístundar er að bjóða upp á innihaldsríkt frístundar- og tómstundastarf í barnvænu og skapandi umhverfi þar sem starfshættir einkennast af frjálsum leik og vali.

Opið er fyrir umsóknir og eru foreldrar beðnir um að sækja um sem allra fyrst, áður en skólarnir byrja. Foreldrar sem eiga börn sem nýttu sér frístund á síðasta skólaári þurfa einnig að skila inn umsókn ef þeir ætla að halda áfram að nýta sér þjónustu Frístundar.

Hægt er að sækja um vistun í gegnum íbúagáttina sem má finna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar

Við hlökkum til að taka á móti ykkur.
Anton Örn Björnsson
anton@vestmannaeyjar.is
s: 4812964

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is