Í gær kom út fyrsta lagið Guðrúnar Erlingsdóttur á Spotify, Friður á jólanótt
Lagið er sungið af Helgu Möller, útsetning er eftir Helga Reyni Jónsson og Snorra Karl Pálsson, Helgi syngur bakraddir og spilar á píanó, bassa og gítar. Þórður Gunnar Þorvaldsson masteraði lagið.
Lag og texta samdi Guðrún árið 2016, lagið samdi ég á gítar en 2020 kom viðlagið til mín en það er mitt fyrsta verk sem ég sem á píanó segir Guðrún.
Guðrún hefur samið 18 lög og 15 þeirra voru flutt á tónleikum sem hún hélt 2016 í Salnum í Kópavogi, eitt var flutt á Eyjatónleikum í Hörpunni og Höllinni í Eyjum. Nokkur lög hafa verið flutt í kirkjum landsins sem og erlend lög með textum Guðrúnar.
Við tökum nánara spjall við Guðrúnu í jólablaði Tíguls sem kemur út 20. desember.
Hlustaðu á nýja lagið með því að smella á myndina