Þriðjudagur 5. desember 2023

Fréttatilkynning frá Ernu og Herði á Joy

Kæru viðskiptavinir
Sl. mánudag 25. nóvember ákváðum við eigendur að loka JOY í óákveðinn tíma og vonuðumst við eftir
að mæta aftur til leiks þegar daginn fer að lengja. Þekkt er að veitingarekstur er snúinn í
Vestmannaeyjum yfir vetrartímann og hefur það einnig átt við okkar rekstur síðustu ár. Við þykjumst
vita í gegnum tíðina að ykkur, viðskiptavinum okkar, þyki gott að koma til okkar og að þið upplifið það
að mikið er lagt upp úr því að hafa hlutina í lagi. Við höfum fengið hrós frá ykkur sem okkur þykir
virkilega vænt um.
Okkur langar líka að segja nokkur orð vegna fréttar á mbl.is í gær, miðvikudaginn 27. nóvember, um
hótanir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands í okkar garð. Við höfðum vissulega fengið ítrekaðar
athugasemdir en getum fullvissað ykkur um að þær athugasemdir snúa ekki að þeim vörum sem seldar
eru eða hreinlæti tengdri framleiðslu á matvælum. Athugasemdirnar snúa helst að gólfefni í sal,
málningu á hillum og veggjum á þurrlager og að daglegri skráningu á þrifum og hitastigi í kælum hafi
verið ábótavant. Stefnan var vissulega að taka tillit til athugasemda eftirlitsaðila á meðan lokun væri.
Okkur finnst líka umhugunarvert að opinber eftirlitsaðili, sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er, geti sent
frá sér gögn til þriðja aðila áður en tímafrestur eiganda er liðinn til að koma með svör um úrbætur. Til
upplýsinga þá höfðum við frest út miðvikudaginn 27. nóvember til að svara athugasemdum eftirlitsins.
Umrædd frétt á mbl.is byggð á gögnum frá Heilbrigðiseftirlitinu birtist hins vegar á mbl.is kl. 05.30
þann 27. nóvember.
Að fyrirtæki og einstaklingar sem þar liggja að baki séu teknir af lífi opinberlega á mjög villandi hátt og
það áður en að frestur til úrbóta er liðinn, er mjög alvarlegt og til þess fallið að við sem eigendur
komum til með að fá skýringar á því.
Að endingu viljum við þakka ykkur fyrir ánægjuleg viðskipti.

Erna Dögg og Hörður Orri

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is