Fréttatilkynning frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins

Sýslumaðurinn áfram í Vestmannaeyjum
Það er með mikilli ánægju sem við tilkynnum að okkur var að berast tilkynning um að staða
Sýslumannsins í Vestmannaeyjum verði nú auglýst og einnig verði færð verkefni til Vestmannaeyja til að styrkja embættið og tryggja rekstrargrundvöll þess. Það hefur reynst okkur Eyjamönnum mikilvægt að hafa sýslumanninn staðsettan í Vestmannaeyjum. Það er von okkar að nýr sýslumaður sæki fram og efli embættið enn frekar, tækifærin eru svo sannarlega til staðar. Áslaug Arna dómsmálaráðherra hefur skilning á mikilvægi þjónustu embættisins og vilja til að efla starf
embættanna á landsbyggðinni og bæta þannig þjónustuna við íbúana. Það er ánægjulegt að hún hafi sýnt
málflutningi Eyjamanna fullan skilning og auglýsi starf sýslumanns og færi hingað verkefni, fyrir það erum við þakklát.


Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins,
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Helga Kristín Kolbeins
Trausti Hjaltason

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is