Fiskifréttir greindu fyrst frá: Verðlaunin voru veitt í áttunda sinn en verndarar þeirrar eru sjávarútvegsráðuneytið og Kópavogsbær. Verðlaunin settu lokapunktinn á viðburðaríkan fyrsta dag Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, en hún stendur yfir dagana 8.-10. júní.
Verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar voru afhent í fyrsta skipti árið 1999 og er tilgangur þeirra að heiðra afburðafólk í íslenskum og alþjóðlegum sjávarútvegi og beina kastljósinu að hugmyndaríkustu og frumlegustu vörum ásamt því að veita framúrskarandi vörum og þjónustu viðurkenningu.
Verðlaunin í ár eru styrkt af Vónin, Bureau Veritas og Morgunblaðinu. Verðlaunahafar voru valdir af nefnd sérfræðinga undir formennsku Guðjóns Einarssonar, fyrrum ritstjóra Fiskifrétta, og Jason Holland, ritstjóra World Fishing & Aquaculture Magazine.
Verðlaunaafhendingin fór fram í Gerðasafni, Kópavogi og njóta stuðnings bæði Fiskifrétta og World Fishing and Aquaculture magazine.
Forsíðumynd/Bragi Þór Jósefsson
Hér fyrir neðan má sjá heildarlista yfir verðlaunahafa 8. verðlauna Íslensku sjávarútvegssýningarinnar:
Sýningarverðlaun:
Besta nýjung kynnt á sýningunni – Hampiðjan – ljósleiðarakapall.
Besta sýningarrými að 50m² – Kæling og Micro
Besta sýningarrými yfir 50m² – Danski þjóðarskálinn
Íslensku verðlaunin:
Framúrskarandi skipstjóri – Gísli V. Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK 7
Framúrskarandi árangur í sjávarútvegi – Guðmundur Gunnarsson, fyrrum þróunarstjóri veiðarfæra Hampiðjunnar
Birgjar – vinnsluverðlaun
Framúrskarandi evrópskt fyrirtæki í vinnslu – Bakkafrost
Skilvirkni í veiðum og fiskeldi, stórfyrirtæki með yfir 50 starfsmenn – WiseFish
Skilvirkni í veiðum og fiskeldi, fyrirtæki með undir 50 starfsmönnum – Olen
Aukin verðmætasköpun í vinnslu, stórfyrirtæki með yfir 50 starfsmenn – Sæplast
Aukin verðmætasköpun í vinnslu, stórfyrirtæki með undir 50 starfsmönnum – ALVAR
Nýsköpunarverðlaun fyrir hliðarafurð – Marine Collagen
Besti alhliða birgirinn – Vónin

