Á bæjarráðsfundi í dag voru lögð fram drög að viljayfirlýsingu Vestmannaeyjabæjar og Þekkingarseturs Vestmannaeyja um uppbyggingu og framtíðarsýn á þekkingar-, nýsköpunar- og frumkvöðlastarfsemi á 3. hæð Fiskiðjunnar.
Í yfirlýsingunni er m.a. kveðið á um áform aðila um uppbyggingu þekkingarstarfsemi á 1040 fm. svæði. Þegar er búið að ráðstafa hluta af svæðinu undir starfsemi stafrænnar smiðju og fjölnota rými fyrir nýsköpun og sprotastarfsemi, en áform eru um uppbyggingu á öðru óráðstöfuðu svæði á hæðinni.
Gert er ráð fyrir að aðilar geri með sér samkomulag þar sem ítarlegar er kveðið á um fjármögnun, tímasetningar og kostnað.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og felur bæjarstjóra að undirrita hana f.h. Vestmannaeyjabæjar.
Bæjarráð lýsir ánægju með að Þekkingarsetur Vestmannaeyja sé reiðubúið í samstarf um framtíðarsýn og uppbyggingu á þekkingarstarfsemi í samvinnu við Vestmannaeyjabæ á hæðinni. Það undirstrikar samstöðu og áhuga á að byggja upp og greiða fyrir öflugri uppbygginu nýsköpunar-, frumkvöðla- og sprotafyrirtækja í Vestmannaeyjum í samstarfi við atvinnulífið.

