Heilbrigðisráðherra hyggst framlengja núgildandi reglugerð um sóttvarnaráðstafanir um eina viku. Hún myndi að óbreyttu renna hún á miðnætti á miðvikudag.
Byggir ákvörðunin á tillögu Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Þetta kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi.
Áfram verður því tuttugu manna hámarksfjöldi í sama rými með ákveðnum takmörkunum út 12. maí næstkomandi.
Svandís fyrir utan Ráðherrabústaðinn sagði að Þórólfur hafi lagt til að staldrað yrði við í eina til tvær vikur til að ná aðeins betur stjórn á stöðu faraldursins innanlands. Niðurstaða Svandísar var að framlengja núgildandi aðgerðir um eina viku. Hún telur að forsendur verði til þess að taka skref til afléttingar aðgerða í næstu viku í samræmi við áætlanir stjórnvalda.
Svandís sagði það mjög jákvætt að smit hafi fyrst og fremst verið að greinast í sóttkví undanfarna daga. Þá hafi bólusetning gengið vel og tekið fram úr áætlunum ríkisstjórnarinnar. Svandís vonast til að geta haldið áfram að aflétta aðgerðum innanlands sem fyrst.
Tekið af visir.is

