Laugardagur 17. október 2026

Framkvæmdir í fullum gangi – flóðljós, gatnagerð og Íþróttamiðstöðin

Farið var yfir stöðu stærstu framkvæmda Vestmannaeyjabæjar á fundi bæjarráðs 24. ágúst síðastliðinn. Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu verkefna, meðal annars við Íþróttamiðstöðina, gatnagerð og fráveitu og nýja flóðlýsingu á Hásteinsvelli.

Framkvæmdir við Íþróttamiðstöðina

Viðamiklar framkvæmdir standa yfir við Íþróttamiðstöðina. Vinna við sökkla viðbyggingarinnar er hafin og er unnið skipulega frá vestri til austurs til að auðvelda jarðvinnuverktökum að moka ofan í grunninn innan sökkla. Samkvæmt grófri áætlun á uppsteypu að vera lokið í mars eða apríl.

Samhliða þessu hefur verið unnið að endurbótum innanhúss. Endurnýjun lýsingar í æfingasölum 2 og 3 gengur vel og verklok þar eru áætluð fyrir komandi mánaðamót. Þá er endurnýjun í sundlaugakjallara langt komin. Helstu framkvæmdum þar er lokið en unnið að lokafrágangi, meðal annars við skjámynd og stýringu í vaktbúri og færslu klórskynjara.

Sólhlíð stefnt í malbikun í september

Framkvæmdir við gatnagerð og fráveitu eru einnig umfangsmiklar. Í Sólhlíð er verið að leggja lokahönd á fráveituframkvæmdir. Næstu vikur er gert ráð fyrir að HS Veitur ljúki lagningu hita-, vatns- og rafveitu og ef áætlanir standast verður gatan malbikuð um miðjan september.

Í Miðgerði hefur götustæðið verið grafið út að fullu og vinna við fráveitu stendur yfir. Þar hefur framkvæmdatíminn þó ekki staðist upphaflegar áætlanir verktaka.

Flóðljósamöstrin rísa á Hásteinsvelli

Framkvæmdir við nýja flóðlýsingu á Hásteinsvelli eru einnig komnar vel á veg. Vinnu við undirstöður er lokið og samkvæmt minnisblaðinu er reiknað með að verktakar komi til Eyja um mánaðamótin ágúst og september til að reisa möstrin og setja upp ljósabúnaðinn.

Að uppsetningu lokinni verður gengið frá umhverfinu í kringum möstrin. Þá þykir líklegt að steypa þurfi stoðvegg við mastrið í norðausturhorni vallarins til að halda aftur af jarðvegi.

Samkvæmt yfirliti yfir eignfærðar framkvæmdir sveitarfélagsins á árinu 2026 er gert ráð fyrir umtalsverðum fjárfestingum á árinu, þar sem framkvæmdir við Íþróttamiðstöðina eru stærsti einstaki liðurinn.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search