Sunnudagur 15. nóvember 2026

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum orðinn UNESCO skóli

Við erum stolt að segja frá því að Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er formlega orðinn UNESCO skóli og hefur fengið leyfi til að nota merki UNESCO skóla sem gæðastimpil á því góða starfi sem unnið er í skólanum.

 

 

Skólinn hefur haft umhverfismál að leiðarljósi undanfarin ár og hefur þegar innleitt öll fimm skrefin í grænum skrefunum. Nú er Framhaldsskólinn orðinn UNESCO skóli og það merkir að stefna skólans er byggð á stefnu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Skólinn hefur einsett sér að nemendur, starfsmenn og allt skólasamfélagið leggi sig fram við að gera það sem þeir geta til að stuðla að sjálfbærni
á öllum sviðum. En til að vera UNESCO skóli þá skuldbindur skólinn sig til að vinna að verkefnum sem tengjast;

– Alþjóðasamvinnu

– Starfsemi Sameinuðu þjóðanna

– Heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun

– Friði og mannréttindum.

Skólinn hefur skuldbundið sig til að halda árlega upp á tvo ólíka alþjóðadaga Sameinuðu þjóðanna. Þar er úr ótal dögum að velja svo sem alþjóðadaga: læsis, mannréttinda, hafsins, einhverfu, barnsins, friðar, jarðarinnar og vísinda og auðvitað verða það nemendur skólans sem velja hvaða dagar það eru sem við höldum sérstaklega upp á.

Skólinn ætlar að standa árlega fyrir einum viðburði sem tengist Sameinuðu þjóðunum sem á samhljóm við gildi þeirra eða heimsmarkmiðin. Skólinn ætlar að vera með sýningar á verkefnum sem tengjast gildum Sameinuðu þjóðanna og standa að viðburðum sem snúa að umhverfisvernd, loftlagsaðgerðum eða góðgerðamálum. Jafnframt skilar skólinn árlega til Félags Sameinuðu þjóðanna yfirliti yfir þau verkefni sem skólinn hefur sinnt innan vettvangs skólanetsins.

Það er mikil viðurkenning fyrir skólann að fá þennan gæðastimpil og tilheyra skólaneti UNESCO.

Nú er skólinn kominn með aðgengi að skólasíðu samtakanna og veitir það skólanum aukin tækifæri til samstarfs við aðra UNESCO skóla. Nemendur fá nú tækifæri til að taka þátt í verkefnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um allan heim og Sendiráð Íslands í ólíkum þjóðum leitast við að vísa til skólanna spennandi verkefnum og tækifærum sem tengjast gildum UNESCO. Jafnframt fá nú kennarar og nemendur tækifæri til að taka þátt í ráðstefnum og þingum á vegum UNESCO og skólanetum annara landa.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search