Opinn framboðsfundur fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022 verður haldinn í Eldheimum í kvöld kl. 20:15
Húsið opnar kl 20:00 og verða léttar veitingar í boði. Einnig verður fundinum streymt, sjá hér neðst í frétt.
Fulltrúar framboðanna þriggja sem mæta til að kynna framboðin og svara spurningum fundargesta eru:
- Eyjalistinn – Njáll Ragnarsson og Helga Jóhanna Harðardóttir.
- Fyrir Heimaey – Íris Róbertsdóttir og Páll Magnússon.
- Sjálfstæðisflokkinn – Eyþór Harðarsson og Rut Haraldsdóttir.
Dagskrá
- Einn frambjóðandi frá hverjum lista fær um 5 mín. til að kynna framboðið fyrir fundargestum (alls 15 mín.).
- Frambjóðendum gefst færi á að spyrja önnur framboð 2-3 spurningar (um 15 mín.).
- Fundargestum gefst færi að spyrja frambjóðendur hnitmiðaðra og málefnalegra spurninga (um 60 mín.)
- Einn frambjóðandi frá hverjum lista fær 3 mín. í formi lokaorða (um 10 mín.).
Bæjarbúum er einnig boðið að senda spurningar fyrirfram á netfangið eyjar2022@gmail.com Fundarstjóri mun koma þeim spurningum á framfæri við frambjóðendur á fundinum.
Höldum umræðum málefnalegum, hnitmiðuðum og kurteisum.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og taka þátt í þessum eina opna framboðsfundi í Vestmannaeyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022.


