Frambjóðendur Vinstri grænna í Suðurkjördæmi í Heimsókn í Eyjum

Frambjóðendur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs voru í heimsókn í Vestmannaeyjum sl. fimmtudag. Þau heimsóttu ýmis fyrirtæki, stór og smá og kynntu sér starfsemi þeirra. Þá spjölluðu þau og hlustuðu á raddir Eyjafólks víða um bæinn, við verslanir og á öðrum stöðum þar sem fólk kemur saman. 

Frambjóðendurnir fengu afar góðar móttökur, bæði hjá fyrirtækjunum sem þau heimsóttu en ekki síður hjá fólki sem  þau hittu á förnum vegi í dagsins önn. Augljóst er að málstaður Vinstri grænna á góðan hljómgrunn í Eyjum, það sýna móttökurnar. Fjölmargir lýstu því yfir að þeir telji afar mikilvægt að Vinstri græn verði áfram leiðandi stjórnmálaafl í nýrri ríkisstjórn landsins undir dyggri stjórn Kartínar Jakobsdóttur sem er sá stjórnmálaleiðtogi sem nýtur lang mest traust landsmanna. Því verði að tryggja hreyfingunni gott gengi í kosningunum 25. sept. nk. ekki síst í Suðurkjördæmi.  

Bestu þakkir fyrir frábærar móttökur og kveðjur til Vestmannaeyinga

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is