Á fjölmennum félagsfundi Eyjalistans fyrr í kvöld var framboðslisti félagsins fyrir komandi kosningar samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.
Listann skipa eftirfarandi:
- Njáll Ragnarsson – Deildarstjóri og formaður bæjarráðs
- Helga Jóhanna Harðardóttir – Grunnskólakennari
- Erlingur Guðbjörnsson – Stöðvarstjóri hjá Íslandspósti
- Hildur Rún Róbertsdóttir – Deildarstjóri í leikskóla
- Díana Íva Gunnarsdóttir – Hönnuður/Nemi
- Jónatan Guðni Jónsson – Grunnskólakennari
- Bjartey Hermannsdóttir – Móttökuritari
- Hafdís Ástþórsdóttir – Hársnyrtimeistari
- Arna Huld Sigurðardóttir – Hjúkrunarfræðingur
- Drífa Þöll Arnardóttir – Bókavörður
- Sigurður Þór Símonarson – Sjómaður
- Salóme Ýr Rúnarsdóttir – Starfsmaður í Straumi
- Gauti Gunnarsson – Smiður
- Sigurður Hjörtur Grétarsson – Verkamaður
- Hrefna Valdís Guðmundsdóttir – Skjalavörður
- Bjarni Sigurðsson – Matreiðslumeistari
- Einar Friðþjófsson – Framhaldsskólakennari
- Ólöf Margrét Magnúsdóttir – Sérkennari
Þá var á fundinum samþykkt að oddviti listans yrði jafnframt bæjarstjóraefni hans við komandi kosningar.
Eyjalistinn vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem sýndu framboðinu áhuga, veittu ráðgjöf og ráðleggingar og bentu á frambærilega einstaklinga til þátttöku.
Næst á dagskrá Eyjalistans er að halda áfram málefnavinnunni og tryggja að næstu fjögur árin verði haldið áfram að efla þjónustu við íbúa í Vestmannaeyjum og gera góðan bæ enn betri!

