Búast má við tímabundnum lokunum á nokkrum götum bæjarins í dag vegna malbikunarvinnu. “ Það er verið að fræsa á fyrir nýju malbiki á Illugagötu, Höfðavegi og Garðavegi,“ sagði Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs hjá Vestmannaeyjabæ í samtali við Tígul. „Stefnt er á að malbika svo þessar sömu götur á mánudaginn. “ Það er því rétt að sýna aðgát í umferðinni í dag.

