Þessar upplýsingar skipta okkur miklu máli, þá mest okkur sem búum hér í Vestmannaeyjum.
Í tilkynningu frá Herjólfi ohf segir frá þessu:
Það er okkur ánægja að segja frá því að núna er hægt að fylgjast með ölduhæð ásamt veðurlagi á heimasíðunni okkar. Við erum alltaf að leitast eftir leiðum til þess að bæta upplýsingaflæði sem og þjónustu til viðskiptavina okkar, vonum við að þetta sé skref í rétta átt. Framundan er nýtt ár, og erum við staðráðin í að halda áfram að gera betur.
Virkilega vel gert hjá ykkur flotta starfsfólk Herjólfs, mikið hrós fyrir þetta, skoða má þetta nánar inn á herjolfur.is