Eyjan skartaði sínu fegursta í dag á setningu Þjóðhátíðar. Allir brosandi út að eyrum, prúðbúnir og mjög svo tilbúnir í þessa langþráðu Þjóðhátíð. Tígull smellti nokkrum myndum af, voru reyndar fleiri en nokkrar tjaldmyndir yfirlýstust vegna gljáandi skrauts sem ljósmyndarinn áttaði sig ekki á. Við bætum það upp um helgina enda er veislan bara rétt að byrja. Og já fengum lánaða sjálfuna frá Guðmundi prest í forsíðumynd, enda tær snilld.
Ef þið takið myndir til að birta á ykkar samfélagsmiðlum þá endilega tagga #tigull.is

















































































