Hann Hólmgeir Austfjörð segir skemmtilega frá:
Föstudagurinn 13 á Halamiðum !!!
Það gekk ýmislegt á þegar híft var í morgun, þegar við vorum komnir með lengjuna inn og byrjaðir að taka færur á belgnum, þá allt í einu rifnaði pokinn frá
Þá var ekkert annað í stöðunni en að sjósetja lettbatinn til að reyna að bjarga verðmætunum sem lágu að mestu í veiðarfærum og aflanemum. Eftir smá hnoð og bras gekk þetta allt upp og við náðum þessu innfyrir, slysalaust
Nú erum við með hitt trollið úti og viðgerð stendur yfir á því laskaða, það er brunagaddur úti en þessir jaxlar eru ýmsu vanir og kvarta ekki
Myndirnar tók einnig hann Hólmgeir Austfjörð.