Fimmtudagur 8. október 2026

Forvarnarhópurinn Bleiki fílinn hættir

For­varn­ar­hóp­ur­inn Bleiki Fíll­inn hef­ur ákveðið að hætta eft­ir 10 ára starf. Þetta kem­ur fram í færslu á Face­book-síðu hóps­ins.

„Eft­ir tvær MeT­oo bylt­ing­ar hef­ur vissu­lega mikið áunn­ist þó langt sé í land. Við í hópn­um erum þó orðin lúin og telj­um að nú séu kafla­skil í starfi okk­ar. Hver sem framtíðin verður vilj­um við nota tæki­færið nú og þakka fyr­ir ómet­an­leg­an stuðning gegn­um árin,“ seg­ir í færsl­unni.

„Við hóf­um störf í afar ólíku lands­lagi en við sjá­um nú. Orðræðan var allt önn­ur og viðhorf til kyn­ferðisof­beld­is voru oft­ast nær ein­föld; þagga niður þetta óþægi­lega mein sam­fé­lags okk­ar. Slag­orð okk­ar voru því skýr: Það er bleik­ur fíll í stof­unni, vanda­mál sem all­ir vita af en eng­inn vill ræða. Því þarf að breyta,“ seg­ir enn frem­ur í færsl­unni.

Hvetja fólk til að bera merki hóps­ins

Hóp­ur­inn, sem var stofnaður árið 2012, hafði verið í sam­starfi við þjóðhátíðar­nefnd sem snéri að því að vinna gegn kyn­ferðisof­beldi.

Þá hvet­ur hóp­ur­inn fólk til að halda áfram að bera merki hóps­ins, þannig sé verið að stuðla að vit­und­ar­vakn­ingu.

„Þegar þið berið merki hóps­ins eruð þið að stuðla að vit­und­ar­vakn­ingu og umræðu. Ekki hætta því. Þannig eruð þið hluti af lausn­inni en ekki vand­an­um. Þið viljið ekki bleika fíla í ykk­ar liði, þið viljið að fólk ræði um mik­il­vægi samþykk­is, þið styðjið þolend­ur, þið viljið ekki stinga hausn­um í sand­inn, þið viljið stuðla að breyt­ing­um.“

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search