Nýir búningsklefar og önnur aðstaða leikmanna og starfsfólks knattspyrnuleikja í áhorfendastúkunni við Hásteinsvöll, var til sýnis í dag milli klukkan 16:00-18:00.
Með nýju húsnæði fyrir knattspyrnulið, leikmenn og starfsfólk, verður liðsaðstaðan öll til fyrirmyndar, með nútímalegum aðbúnaði og horft til framtíðar. Í nýrri aðstöðu eru m.a. rúmgóðir búningslefar, góð sturtuaðstaða, heitir pottar, aðstaða fyrir sjúkraþjálfara, dómara, þjálfara og góð geymsluaðstaða.
Með þessum framkvæmdum er stigið fyrsta skrefið í uppbyggingu á allri aðstöðu til íþróttaiðkunar til framtíðar hjá Vestmannaeyjabæ.
Í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ segir að allir séu hvattir til að koma og skoða aðstöðuna.
ÍBV-íþróttafélag tók einnig á móti fyrirmyndaskjali ÍSÍ sem fyrirmyndafélag, en félagið hefur verið fyrirmyndarfélag ÍSÍ síðan 2012 og hefur nú endurnýjað þá viðurkenningu.
Íris og Þór.
Trausti Hjaltason og Helga Helgadóttir stjórnarkona hjá KSÍ mættu fyrir hönd Knattspyrnusambands Íslands.
Þór með viðurkenningarskjalið um fyrirmyndafélag ÍSÍ.
Glæsilegt búningsaðstaða.


















