Smá óhapp varð í morgunsárið á horni Birkihlíðar og Kirkjuvegar. Um var að ræða einn bíl þar sem bílstjóri varð fyrir því óhappi að aka út af veginum með þeim afleiðingum að hann hafnaði uppi á garðvegg. Umtalsvert tjón varð á bifreiðinni en einnig skemmdist tengikassi frá Mílu og ekki er vitað hvort einhverjar truflanir gætu orðið á fjarskiptum í nágrenninu vegna þessa. Sem betur fór urðu engin slys á fólki samkvæmt lögreglunni í Vestmannaeyjum.
Vel gekk að fjarðlægja bílinn með kranabíl.