Um helgina verður flugslysaæfing á vegum Isavia og viðbragðsaðila í Vestmannaeyjum.
Slíkar æfingar eru haldnar með reglubundnum hætti á öllum flugvöllum í eigu eða umsjá Isavia. Í ár er komið að Vestmannaeyjaflugvelli, segir Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia í tilkynningu til Tíguls fyrr í dag.
Dagskrá hófst í dag og verður framhaldið á morgun. Um kl. 10 í fyrramálið verður æfing Isavia og Slökkviliðs Vestmannaeyja. Starfsmenn Isavia á flugvellinum og slökkviliðið mun m.a kveikja eld á flugvallarsvæðinu og því vilja forsvarmenn Isavia koma því á framfæri við bæjarbúa að um æfingu sé að ræða.

