Á bæjarstjórnarfundi þriðjudaginn síðastliðin ræddi bæjarstjórn stöðu flugsamgangna milli Vestmannaeyja og meginlandsins
Í sameiginlegri bókun bæjarstjórnar segir:
Flugsamgöngur við Vestmannaeyjar hafa legið niðri í tvo mánuði og er afar brýnt að þeim verði komið á sem allra fyrst með aðkomu ríkisins. Brúa þarf bilið á meðan unnið verður að varanlegri leið í sátt við stjórnvöld og hagsmunaaðila sem tryggja flugsamgöngur allt árið. Flugið er og verður afar mikilvægt íbúum og atvinnulífinu.
Bæjarráð hefur fundað tvisvar sinnum með fulltrúum samgönguráðuneytis og Vegagerðarinnar. Bæjarstjóri hefur þegar óskað eftir nýjum fundi með Vegagerðinni og samgönguráðuneytinu sem allra fyrst vegna málsins og beðið er svara.