Flug

Flugsamgöngur til og frá Vestmannaeyjum

Eins og vitað er hafa flugsamgöngur til og frá Vestmannaeyjum legið niðri síðan Icelandair hætti áætlunarflugi í sumar

Síðan þá hefur Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, verið í reglulegum samskiptum við samgönguráðherra og fulltrúa Vegagerðarinnar um nauðsyn þess að hefja að nýju flugsamgöngur til og frá Vestmannaeyjum og ráðuneytið og stofnunin sýnt því skilning. Bæjarráð hefur jafnframt átt nokkra fundi með samgönguráðuneytinu og Vegagerðinni og nú síðast miðvikudaginn 17. nóvember. Á þeim fundi komu fram þær fréttir að ráðuneytið muni fara í verðkönnun á lágmarksflugsamgöngum til og frá Vestmannaeyja í vetur vegna áhrifa Covid-faraldursins. Jafnframt tilkynnti ráðuneytið að það hefði falið Vegagerðinni að ráðast í forvinnu í tengslum við ákvörðun um hvort farið verði í útboð á ríkisstyrktu flugi, en slíkt fyrirkomulag þarf að samræmast reglum skv. EES-samningnum á þessu sviði.

Það er ánægjulegt að samgönguráðherra, fulltrúar ráðuneytisins og fulltrúar Vegagerðarinnar skuli sýna Vestmannaeyingum skilning á aðstæðum þeirra og beita sér fyrir því að finna ásættanlega lausn á að hefja reglulegar flugsamgöngur að nýju sem fyrst.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is