Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á þriðjudaginn síðastliðinn voru umræður um samgöngumál á dagskrá.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Trausti Hjaltason fóru yfir stöðu flugsamgangna.
Icelandair hóf flug á markaðslegum forsendum milli lands og Eyja í lok maí og hefur flogið tvö flug á dag fjórum sinnum í viku frá þeim tíma.
Flugið hefur verið vel nýtt í kringum stórar helgar og sérstaka viðburði, en nýting meðal heimamanna mætti vera betri og mikilvægt að Vestmannaeyingar nýti þennan samgöngumáta, til þess að hægt sé að reka flugsamgöngur á markaðslegum forsendum.

