Í ljósi aðstæðna og samkomutakmarkana stjórnvalda hefur verið ákveðið að hætta við áramótabrennuna í Hásteinsgryfju á gamlársdag. Með því er dregið úr hættunni á því að fólk safnist saman af þessu tilefni. Flugeldasýningin mun þó verða á gamlársdag og hefst hún kl. 17:00 í Hasteinsgryfju.
Sá staður er tilvalinn vegna staðsetningar og útsýnis.
Fólk er hvatt til að virða fjöldatakmarkanir og sóttvarnir. Vinsamlegast safnist ekki saman í hópum til að fylgjast með sýningunni. Jafnframt er fólk beðið um að virða þau öryggissvæði sem sett verða upp. Sýningin mun sjást vel úr ofanverðum bænum og ofan við bæinn.
Fulltrúar Björgunarfélagsins eru orðnir mjög spenntir fyrir sýningunni og hlakka til að fá loks að skjóta upp flugeldum fyrir Vestmannaeyinga og gesti.
Umfram allt, njótum sýningarinnar og virðum fjarlægðarmörk segir að lokum í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.