Lista skreyttar ruslatunnur hafa vakið mikla lukku ferðamanna sem spóka sig um Heimaey enda engin furða þar sem þær eru listaverk
Það eru þrjár Færeyskar eyjastelpur hafa þrjú síðastliðin sumur unnið við það að skreyta ruslatunnur bæjarins á vegum Vestmannaeyjabæjar.
Hér fyrir neðan eru tunnurnar sem komnar eru upp nú þegar og mun fleiri líta dagsins ljós eftir sumarið, Helgi R. Tórzhamar tók þessar myndir.
Listakonurnar eru þær: Guðný Emilíana Tórshamar, Isabella Maí Tórshamar og Saga Tórshamar
Óskar Guðjón Kjartansson fyrir að framkvæma þessa hugmynd þína og leyfa okkur hinum að njóta.


