Þjóðhátíð í Eyjum verður sett með formlegum hætti föstudagskvöldið 30. júlí en Húkkaraballið er það sem keyrir upp stemninguna fyrir því sem koma skal þessa einstöku helgi í Herjólfsdal
Húkkaraballið í ár lítur svona út:
Flóni, Gugusar, Ingi Bauer, Snorri Ástráðs, Dóra Júlía, Birgir Hákon, Luigi, Bassi Maraj ofl óvæntir gestir.
Það eru svo Ingi Bauer & Snorri Ástráðs sem stýra líka partýinu á föstudagskvöldinu í Dalnum ásamt Flóna, Séra Bjössa og Bassa Maraj.
Einnig verður Sveinn Waage, Eyjamaður með meiru, kynnir á laugardagskvöldinu.
Dagskráin á Þjóðhátíð hefur aldrei verið glæsilegri:
Brimnes, Bríet – Aron Can – FM95Blö – DJ Muscleboy – XXX Rottweiler hundarnir – Emmsjé Gauti – Aldamóta tónleikarnir – Cell 7 – Herra Hnetusmjör – Jóhanna Guðrún – JóiPéxKróli – Sprite Zero Klan, Hipsumhaps, Háski, Bandmenn, Stuðlabandið, Pálmi Gunnars, Guðrún Árný, Klara Elías, Sverrir Bergmann og Ragga Gísla.
Í næstu viku verða síðustu atriði hátíðarinnar kynnt.


