Mánudagur 9. nóvember 2026

Flensusprautan fæst í Apótekaranum í Eyjum frá mánudegi

Uppfært. kl 11.14 3.11.

Apótekarinn að Vesturvegi 5 í Vestmannaeyjum byrjar að bólusetja gegn árlegri inflúensu mánudaginn 9. nóvember. Barbora Gorová lyfsöluleyfishafi hjá Apótekaranum í Eyjum segir að apótekið hafi fengið leyfi til að bólusetja og að allt sé tilbúið. Og mun því vera hægt að fá flensusprautu í Apótekaranum frá og með mánudeginum 9. nóvember.

Til að byrja með verður boðið upp á bólusetningu gegn bæði inflúensu og pneumókokkum.

Apótekarinn í Eyjum bætist þar með í hóp apóteka sem bjóða flensusprautu samkvæmt nýjum samningi Sjúkratrygginga Íslands við apótek, sem heilbrigðisráðuneytið greindi frá í gær. Bólusetning gegn inflúensu er fyrsta þjónustan sem apótekin veita samkvæmt samningnum.

Níu apótek með samning

Apótekin sem hafa samið við Sjúkratryggingar eru Akureyrarapótek Norðurtorgi, Apótek Suðurlands, Apótekarinn, Bæjarapótek, Íslands Apótek, Lyfja, Lyfjaval, Reykjanesapótek og Urðarapótek. Ráðuneytið segir von á að fleiri bætist í hópinn.

Það eru lyfjafræðingar og hjúkrunarfræðingar með viðurkennda þjálfun í bólusetningum sem sjá um sprautuna. Bólusetningin er skráð beint í bólusetningagrunn og fólk getur séð hana á Mínum síðum, sama hvar það var bólusett.

Sama verð og á heilsugæslunni

Kostnaðurinn er sá sami og á heilsugæslu. Fólk í forgangshópum sóttvarnalæknis fær bæði bóluefnið og bólusetninguna sér að kostnaðarlausu, og ekkert komugjald er tekið þegar fólk kemur eingöngu í flensusprautu. Forgangshóparnir ganga fyrir á tímabili sem sóttvarnalæknir ákveður. Eftir það geta allir fengið bólusetningu í apóteki og greiða þá aðeins fyrir bóluefnið, en sjálf sprautan er ókeypis.

Apótekin bólusetja fullorðna. Barnshafandi konum er bent á mæðravernd og foreldrum ungra barna á heilsugæsluna.

Líka hægt á heilsugæslunni

Áfram er hægt að fá flensusprautuna á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) að Sólhlíð 10. Tímar eru bókaðir í síma 432 2500.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search