25.02.2020
Vestmannaeyjabær auglýsir fjórar raðhúsalóðir í Áshamri lausar til umsóknar.
Um er að ræða fjórar raðhúsalengjur með fimm íbúðum hver, samtals 20 íbúðir. Hver íbúð á sér afnotalóð. Lóðarstæðir og stærðir afnotalóða eru sýndar á deiliskipulagsuppdrætti og skilmálablöðum.
Gögn með umsókn:Einstaklingum ber að leggja fram greiðslumat frá viðurkenndri fjármálastofnun á greiðslugetu sinni í húsnæði. Fyrirtæki skulu leggja fram staðfestingu viðskiptabanka á greiðslugetu sinni. Til þess að umsókn teljist gild þarf umsækjandi að vera í skilum við bæjarsjóð. Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda vinnureglur um úthlutun lóða í Vestmannaeyjum nr. 131/2006. Gjaldskrár, skipulags- og byggingaskilmálar og allar aðrar upplýsingar liggja frammi á skrifstofu umhverfis- og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5. Áætlað er að lóðirnar verði byggingarhæfar í júlí. 2020. Umsóknarfrestur er til og með 19. mars n.k.