Mánudagur 9. nóvember 2026

Sex Eyjakonur á EM-lista Íslands

Fjórir leikmenn ÍBV eru á 35 manna lista sem íslenska kvennalandsliðið í handbolta hefur skilað inn til EHF vegna Evrópumótsins í desember. Þetta eru þær Sandra Erlingsdóttir, Birna Berg Haraldsdóttir, Ásdís Halla Hjarðar og Andrea Jacobsen. Einnig eru þær Elísa Elíasdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir Eyjastelpur og uppaldar hjá ÍBV. Í starfsteymi landsliðsins eru fimm sem eru frá Eyjum eða með Eyjatengingu.

Aðeins Haukar eiga fleiri fulltrúa á listanum, sem nær til allra leikmanna sem koma til greina á mótið. Endanlegur leikmannahópur verður valinn síðar úr þessum hópi.
Átta leikmenn á listanum hafa ekki leikið A-landsleik. Tígull óskar Eyjakonunum til hamingju.

Arnar Pétursson mun í hádeginu í dag kynna EM-hópinn sinn. Velja má 20 leikmenn á mótið og svo munu 16 leikmenn verða á leikskýrslu í hverjum leik.
Fundurinn er í beinni á YouTube-rás HSÍ: https://www.youtube.com/live/REiOeOBY4EQ

Starfsteymi landsliðsins:

  • Aðalþjálfari: Arnar Pétursson
  • Aðstoðarþjálfari: Óskar Bjarni Óskarsson
  • Markmannsþjálfari: Hlynur Morthens
  • Liðsstjóri: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
  • Fararstjóri: Jón Gunnlaugur Viggósson
  • Fulltrúi HSÍ: Þórir Hergeirsson
  • Sálfræðingur: Erlendur Egilsson
  • Þrekþjálfari: Hjörtur Hinriksson
  • Sjúkraþjálfarar: Tinna Jökulsdóttir og Jóhanna Björk Gylfadóttir
  • Formaður HSÍ: Jón Halldórsson
  • Framkvæmdastjóri HSÍ: Sólveig Jónsdóttir
  • Fjölmiðlafulltrúi: Daníel Franz Davíðsson
  • Ljósmyndari: Guðmundur Lúðvíksson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search