Við fjölskyldan fengum þá hugmynd að skreppa í dagsferð til Vestmannaeyja síðastliðinn föstudag með Herjólfi.
Bókuð um hádegi, siglt klukkan 13:15 og svo heim aftur um kvöldið. Einfalt, þægilegt, ódýrt og öruggt. Svona þarf þetta að virka, alltaf alla daga og engin eftirgjöf á því. Tryggja þarf réttan tækjakost sem ræður við að dýpka Landeyjahöfn hratt og örugglega og vinna að framtíðar úrlausn þar.
Áreiðanlegar og öruggar samgöngur milli lands og Eyja styrkja ekki bara atvinnulífið, auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu og bæta lífsgæði almennt fyrir Eyjamenn. Þær tryggja líka að fjölskyldan mín og aðrir af fastalandinu geti skellt sér í viðlíka dagsferð til Eyja, nýtt sér fjölbreytta afþreyingu, úrval veitingastaða og átt yndislegan dag saman. Þannig viljum við hafa þetta.
Ég tek golfsettið klárlega með í næstu ferð.
Björgvin Jóhannesson
Höfundur sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.


