Ægir Guðni er ellefu ára strákur sem fæddist með sjaldgæfan fæðingargalla, skarð í gómi. Hann hefur gengist undir margar læknisaðgerðir til að laga góminn en að mati foreldra hans, tannréttingasérfræðings, lýtalæknis og kjálkaskurðlæknis þarf hann á frekari aðgerðum og tannréttingum að halda. Sjúkratryggingar Íslands hafa aftur á móti neitað Ægi Guðna og fleiri börnum með skarð í gómi um greiðsluþátttöku á grundvelli þess að fæðingargallinn sé ekki nógu alvarlegur.
„Það er alvarleiki til staðar. Ef þessi börn fá ekki þessa meðferð hefur það bæði andlegar og líkamlegar afleiðingar. Auk stórra aðgerða þegar þau verða fullorðin,“ segir Ragnheiður Sveinþórsdóttir, móðir Ægis Guðna í viðtali hjá RÚV.
Fjölskyldan sé nauðbeygð til að stefna ríkinu þar sem allt annað hafi verið reynt.
„Við erum á endastöð. Við erum búin að vinna í þessu, við fjölskyldan í fimm ár og það er önnur fjölskylda sem er búin að vera átta ár að vinna í þessu. Og börnin eru að verða það gömul að við sjáum ekki annan kost en að einfaldlega stefna. Þetta eru lögbundin réttindi þessara barna. Þetta er alvarlegur fæðingargalli. Og við því miður, þrátt fyrir góðan vilja ráðherra, og við höfum séð að hún er búin að vera að vinna í okkar málum, þá hefur það bara ekki verið nóg,“ segir Ragnheiður.
RÚV fjallaði um þetta mál í kvöldfréttunum í gær – hér er hægt að sjá nánar um málið.

