Þriðjudagur 5. desember 2023
Bærinn Tói Vídó

Fjölbreyttar félagslegar aðgerðir vegna áhrifa af COVID-19

03.12.2020

Alls verður ráðist í félagslegar aðgerðir fyrir tæpar 900 milljónir króna til viðbótar við aðgerðir fyrir tæpa 5,7 milljarða króna sem voru boðaðar í vor, en úrræðunum er ætlað að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 faraldurinn hefur á viðkvæma hópa í samfélaginu.

Ráðist verður í margvíslegar aðgerðir fyrir fatlað fólk og börn sem þurfa aukna þjónustu vegna Covid – 19. Þá verður stuðningur við aldraða, innflytjendur og börn í viðkvæmri stöðu efldur verulega.

Horft er sérstaklega til aldurshópsins 12-16 ára með áherslu á að ná til þess hóps sem hvað síst sækir reglubundið íþrótta- og tómstundastarf.

Aðrar aðgerðir sem ráðist verður í eru stuðningur við félagasamtök sem styðja við viðkvæma hópa, ásamt því sem að félagasamtök á sviði neytendaverndar og hagsmuna heimilanna verða styrkt til að takast á við afleiðingar Covid-19. Þá verður bætt í aðgerðir fyrir heimilislausa, en víðtækar lokanir í samfélaginu hafa mikil áhrif á jaðarsetta einstaklinga sem ekki hafa yfir að ráða fullnægjandi heimilisaðstöðu. Einnig verða fjölbreytt úrræði í boði fyrir heimilin en þar verður áhersla á leiðbeiningaskyldu ásamt því að bjóða upp á stuðning og ráðgjöf í ýmsu formi.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Við höfum alveg frá upphafi Covid-19 faraldursins lagt mikla áherslu á það að styðja við viðkvæma hópa á þessum skrýtnu tímum. Þessum aðgerðum sem við erum að boða núna er ætlað að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur á þá hópa sem eru viðkvæmastir í samfélaginu og hjálpa þeim að komast í gegnum erfiðasta hjallann.”

Forsíðumynd Tói Vídó

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is