Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar kynnti starfsemi vetrarins fyrir fjölskyldu- og tómstundarráði. Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur þáttur í lífi barna og unglinga og gegna því veigamikla hlutverki að sinna uppbyggilegu tómstunda- og félagsstarfi utan skólatíma.
Félagsmiðstöðin er fyrir krakka á aldrinum 10-16 ára. Skemmtileg dagskrá er í hverjum mánuði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Ýmsir klúbbar verða í boði í vetur eins og Dungeons og Dragons, Félóklúbburinn og listaklúbbur sem unnin er í samstarfi við Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja.
Ráðið þakkar kynninguna. Ráðið telur mikilvægt að starfsemi félagsmiðstöðvarinnar bjóði upp á fjölbreytta dagskrá fyrir ungmenni í Vestmannaeyjum. Sérstaklega á tímum sem þessum þar sem ekki hefur verið mikið félagsstarf í boði fyrir ungmenni sl. mánuði vegna hertra samkomutakmarka vegna Covid 19.
Hér má sjá bæklinginn sem er dreift í bekkina / smelltu á myndina til að skoða.