Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til 1631. fundar síns miðvikudaginn 4. nóvember kl. 14:00 í Ráðhúsinu. Stærsta málið á dagskrá er fyrri umræða um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030.
Hörgaeyrargarður og skipulagsmál
Bæjarstjórn ræðir einnig umsókn um framkvæmdaleyfi vegna styttingar Hörgaeyrargarðs og flutnings á efni, en dýpkun í innsiglingunni hófst nýverið.
Þá er lagt til að staðfest verði breyting á deiliskipulagi við Strandveg 44 og að vinnslutillaga að deiliskipulagi fyrir norðurhluta iðnaðarsvæðisins í Eldfellshrauni fari í kynningu.
Kosningar og yfirferð bæjarstjóra
Á dagskrá eru einnig yfirferð bæjarstjóra um helstu mál, dagskrá bæjarstjórnarfunda veturinn 2026–2027 og kosningar í ráð, nefndir og stjórnir. Auk þess eru lagðar fram fundargerðir fræðsluráðs, fjölskyldu- og tómstundaráðs, umhverfis- og skipulagsráðs og framkvæmda- og hafnarráðs.

