Fjárhagsáætlun 2020

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri flutti framsögu um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2020.

Bæjarfulltrúar D-listas höfðum þetta um fjárhagsáætlun bæjarins að segja:
Fjárhagsáætlun sem nú er lögð fram við fyrri umræðu ber þess merki að lítið megi út af bregða við rekstur sveitarfélagsins. Tekjur Vestmannaeyjabæjar stæðu ekki undir gjöldum og væri rekstrarniðurstaða fjárhagsáætlunar neikvæð ef ekki væri fyrir fjármagnstekjur sveitarfélagsins, sem eru fyrst og fremst tilkomnar vegna ábyrgrar fjármálastjórnunar undanfarinna kjörtímabila. Rekstur þar sem tekjur standa ekki undir gjöldum getur ekki talist ásættanlegur til lengri tíma. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta að nauðsynlegt er að gæta að ábyrgð og ráðvendni í rekstri og reynt eftir fremsta megni að koma í veg fyrir vaxandi þenslu og útgjaldaaukningu en laun- og launatengd gjöld eru stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins.
Helga Kristín Kolbeins
Trausti Hjaltason
Hildur Sólveig Sigurðardóttir

Tillaga um gjaldskrár Vestmannaeyjabæjar
Alla jafna hefur gjaldskrá Vestmannaeyjabæjar fyrir þjónustu hækkað milli ára í samræmi við þróun vísitölu neysluverðs. Miðað við spá um verðlagsþróun ætti gjaldskráin að hækka um 3,2% á næsta ári. Í forsendum fjárhagsáætlunar fyrir 2020 kemur fram að taka þurfi sérstaka ákvörðun um hækkun. Með því að hækka ekki gjaldskrána er Vestmannaeyingum auðveldað að nýta þá þjónustu sem bærinn hefur upp á að bjóða. Ákvörðun um slíkt væri jafnframt liður í að ná markmiðum lífskjarasamnings stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins, sem felur m.a. í sér lækkun skatta og gjalda hins opinbera. Í áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga er lagt til að hækka gjaldskrár ekki meira en 2,5%.

Bæjarstjórn leggur til að hækka ekki almenna gjaldskrá bæjarins í A-hluta bæjarsjóðs fyrir næsta ár, þ.m.t. leikskólagjöld, gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar og sundlaugarinnar, matarkostnað fyrir börn í grunn- og leikskólum, dagvistargjöld og úttektrargjöld.
Samþykkt með fimm atkvæðum gegn einu atkvæði Trausta Hjaltasonar (D-lista), Hildur Sólveig Sigurðardóttir (D-lista) sat hjá.

Elís Jónsson forseti bæjarstjórnar bar upp lykiltölur í fjárhagsáætlun ársins 2020.

Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Vestmannaeyja 2020:

Tekjur alls: 4.106.637.000
Gjöld alls fyrir fjármagnsliði: 4.164.613.000
Rekstrarniðurstaða,jákvæð 70.533.000
Veltufé frá rekstri: 527.245.000
Afborganir langtímalána: 22.540.000
Handbært fé í árslok: 578.440.000


Fjárhagsáætlun B-hluta bæjarsjóðs Vestmannaeyja 2020:

Rekstrarniðurstaða Hafnarsjóðs, hagnaður: 71.593.000
Rekstrarniðurstaða Fráveitu, hagnaður: 31.722.000
Rekstrarniðurstaða Félagslegra íbúða: 0
Rekstrarniðurstaða Vatnsveitu: 0
Rekstrarniðurstaða Hraunbúðir: 0
Rekstrarniðurstaða Náttúrustofu Suðurl.hagn. 5.372.000
Rekstrarniðurstaða Herjólfs ohf. tap: -52.160.000
Veltufé frá rekstri: 180.643.000
Afborganir langtímalána: 13.089.000


Fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyja 2020:

Tekjur alls: 6.678.413.000
Gjöld alls: 6.676.698.000
Rekstrarniðurstaða, jákvæð: 127.060.000
Veltufé frá rekstri: 707.888.000
Afborganir langtímalána: 35.629.000
Handbært fé í árslok: 578.440.000

Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun 2020 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is