Fiskitaco er eitthvað sem allir ættu að prófa. Afar hollt og gott og góð tilbreyting frá þessu hefðbundna. Fiskistangirnar hans Gríms eru tilvaldar í þann rétt. Forsteiktar fiskistangir er vara sem slegið hefur í gegn hjá bæði fullorðnum og börnum. Þetta er nýr þorskur hjúpaður með raspi. Stangirnar eru sérlega ljúffengar þegar raspurinn er orðinn stökkur eftir eldun.
Upphitunaraðferð: Hitið ofninn í 185°C.
Setjið stangirnar frosnar inn og hitið í 12-15 mínútur. (Ath! Ofnar eru mismunandi að gerð og gæðum og er upphitunartíminn aðeins til viðmiðunar.)
Mangósalsa
1 ferskt mangó í teningum
1 rauðlaukur, meðalstór fínsaxaður
½ agúrka, smátt skorin
½ rauð paprika
1 stór tómatur, fínt skorinn
1 msk fínsaxaður kóríander
safi og rifinn börkur af ½ límónu
1 tsk gróft salt
Ferskmalaður svartur pipar, magn eftir smekk
Aðferð:
Skerið hráefnin afar smátt niður og blandið saman í skál, kryddið til með salti og pipar og kreistið safann úr límónunni yfir. Geymið salsa í kæli áður en þið berið það fram.
Þegar stangirnar og salasað er tilbúið. Takið þið taco pönnuköku, setjið salsa fyrst, því næst skerið þið fiskistöng í litla bita og raðið á. Gott er að hafa hvítlauksdressingu til að toppa.