22.07.2020
Félagið Sjálfbært fiskeldi í Eyjum undirbýr byggingu fiskeldis á landi í Viðlagafjöru á Heimaey. Tígull heyrði í Hallgrími Steinsyni sem er einn þeirra sem sér um þetta verkefni.
Þetta myndband var gert til að auðvelda fólki að sjá fyrir sér hvernig slík stöð myndi falla inn í umhverfið í Viðlagafjöru.
Einnig sýnir það umfang stöðvarinnar m.t.t. verðmæta- og atvinnusköpunar en tölur og gögn í myndbandinu miðast við 5000 tonn / ári af laxi. Ekki er um að ræða lokahönnun enda eru næstu skref hjá forsvarsmönnum verkefnisins skipulagsvinna og umhverfismat.
Mikið kapp verður lagt á að verkefnið sé unnið í sátt við náttúruna og samfélagið í Eyjum. Fiskeldi er að margra mati einn áhugaverðasti kostur með tilliti til matvælaframleiðslu framtíðarinnar.
Niðurstaða undanfarins árs af vinnu er að Viðlagafjara sé ákjósanlegasti staðurinn á Eyjunni til að hefja uppbyggingu þess.“